Risið

Notalegur vínbar í hjarta Selfoss

Risið Selfossi Iceland

Njóttu góðra veiga í huggulegu andrúmslofti

Risið – vínbar er nýr, hlýr og notalegur vínbar/veislusalur staðsettur á 2. hæð mjólkurbúsins – mathallarinnar í nýja miðbænum á Selfossi.

Risið er tilvalinn staður til að stoppa og njóta góðra vína og kokteila í afslöppuðu og þægilegu umhverfi.

Lagt er upp með að hafa notalega stemningu – tónlistin er alltaf hóflega stillt og hlýlegt andrúmsloftið nær hámarki þegar kveikt er á arninum sem er í einni af setustofunni.

Á staðnum er fallegur og hljómfagur flygill sem er notaður við einstök tækifæri – á lifandi tónlistarkvöldum, við samsöng og önnur tækifæri. Salurinn getur tekið við allt að 130 gestum – allt eftir tilefni og uppstillingu og hverju sinni.

Komdu við og njóttu góðra veiga eða hafðu samband við okkur til þess að leigja Risið fyrir viðburðinn þinn.

Risið Selfossi Iceland

Svipmyndir

...af góðum stundum

© Risið 2024
Vefverk: Gasfabrik